Mál nr. 83/2019 úrskurður

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 24. mars 2017 til 31. september 2018 um leigu á íbúð. Er samningur rann út var gerður munnlegur leigusamningur um áframhaldandi leigu Deilt var um endurgreiðslu tryggingarfjár við lok leigusambands. Leigjandi greiddi leigusala tryggingarfé við upphaf leigutíma að fjárhæð 900.000 kr. til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila. Leigusali hafði þegar endurgreitt 550.000 kr. en hélt eftir 150.000 kr. vegna vangoldinnar leigu fyrir júlí 2019 og 200.000 kr. vegna viðgerðarkostnaðar sem hann byggði á að hafi komið til vegna skemmda á hinu leigða á leigutíma.

Að sögn leigjanda hafi leigusali tekið við hinu leigða 2. júlí 2019. Hins vegar taldi leigusali að leigutíma hafi lokið 15. júlí 2019. Til stuðnings þeirri fullyrðingu sinni lagði hann fram rafræn samskipti aðila þar sem leigjandi spurði „hvernig gengi að vera út 15 júlí“ og svaraði leigusali að það gengi. Jafnframt hafi leigjandi gert ráð fyrir því að leigusali héldi eftir 150.000 kr. af tryggingarfénu samkvæmt tölvupósti sendum leigusala 19. júlí 2019 og má ætla að það hafi verið vegna leigu fyrir hálfan júlí mánuð. Kærunefnd taldi því að aðilar hefðu samið um að leigutíma myndi ljúka 15. júlí 2019 og að leigusala hafi verið heimilt að halda eftir 150.000 kr. af tryggingarfénu sem leigugreiðslu fyrir þann mánuð

Samkvæmt tölvupóstsamskiptum aðila gerði leigusali kröfu í tryggingarfé leigjanda 16. júlí 2019 vegna skemmda á innréttingu og hurðum í hinu leigða og nýrrar framhliðar á uppþvottavél.  Í tölvupósti leigjanda, sendum leigusala 19. júlí 2019, sagði að hann væri til í að koma til móts við leigusala með því að hann héldi eftir 100.000 kr. af tryggingarfénu og samtals tæki hann þannig 250.000 kr. af tryggingarfénu.

Með hliðsjón af framangreindum samskiptum aðila taldi kærunefnd ljóst að leigusali gerði kröfu í tryggingarféð vegna meintra skemmda innan fjögurra vikna frá skilum húsnæðisins. Jafnframt var ljóst að leigjandi hafnaði kröfu leigusala innan fjögurra vikna frá móttöku hennar. Hins vegar þar sem leigusali vísaði ágreiningi um bótaskyldu leigjanda hvorki til kærunefndar húsamála né höfðaði mál um bótaskyldu hans innan fjögurra vikna frá þeim degi og bar honum þegar af þeirri ástæðu að endurgreiða tryggingarféð, að fjárhæð 200.000 kr.

Niðurstaða: Leigusala bar að endurgreiða leigjanda tryggingarfé að fjárhæð 200.000 kr. ásamt vöxtum.

Leigjendaaðstoðin notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar vistaðar!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á leigjendur.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur