Neytendasamtökin reka Leigjendaaðstoð fyrir leigjendur íbúðarhúsnæðis samkvæmt samningi við félagsmálaráðuneytið. Leigusalar geta einnig leitað til þjónustunnar og er hún leigjendum og leigusölum að kostnaðarlausu.
Hjá Leigjendaaðstoðinni er hægt að fá upplýsingar og ráðleggingar um réttindi og skyldur en einnig eru leigjendur og leigusalar hvattir til að kynna sér þær upplýsingar sem aðgengilegar eru hér á síðunni.
Ef aðilar ná ekki samkomulagi um ágreiningsefni sín er hægt að leita til kærunefndar húsamála.
Símatími Leigjendaaðstoðarinnar er á þriðjudögum og fimmtudögum frá 10:00-12:00 & 12:30 – 15:00.
Hægt er að senda fyrirspurn hér