Mál nr. 66/2019 úrskurður

Aðilar gerðu ekki skriflegan leigusamning en samkvæmt tölvupósti, 15. febrúar 2019, komust aðilar að samkomulagi um leigu á herbergi. Upphafstími leigutímabilsins var 15. febrúar 2019. Leigusali óskaði viðurkenningar á því að honum hafi verið heimilt að halda eftir 109.900 kr. af tryggingarfé sem leigjandi lagði fram við upphaf leigutíma að fjárhæð 165.000 kr. Leigusali byggði kröfu sína á því að tjón hafi orðið á hinu leigða á leigutíma. Skemmdir hafi orðið á koju, borði og stól. Þá hafi mygla verið í gluggum og þrifum ábótavant.

Óumdeilt var að leigutíma hafi lokið 15. júní 2019 og bera gögn málsins ekki annað með sér en að leigjandi hafi skilað herberginu þann dag. Leigusali gerði kröfu í tryggingarfé leigjanda með kæru til kærunefndar sem móttekin var 5. júlí 2019 og send leigjanda með bréfi kærunefndar dags. 8. júlí 2019. Kærunefnd taldi því rétt að miða við að l leigusali hafði gert skriflega kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leigjanda á herberginu.

Kærunefnd taldi ljóst að þar sem ekki var gerð úttekt við upphaf leigutíma var ekki hægt að fallast á, gegn neitun leigjanda, að hann hafði valdið skemmdum á umræddum húsgögnum. Því hafi leigusala ekki verið heimilt að halda eftir tryggingafénu á þeirri forsendu.

Leigusali gerði einnig kröfu í tryggingarféð vegna þrifa á hinu leigða við lok leigutíma. Þar sem engin úttekt fór fram  á hinu leigða við lok leigutíma og gegn neitun leigjanda féllst kærunefndin ekki á að leigusala hafi verið heimilt að halda eftir tryggingafénu.

Niðurstaða: Leigusala bar að endurgreiða leigjanda tryggingarfé að fjárhæð 165.000 kr. ásamt vöxtum.

Leigjendaaðstoðin notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar vistaðar!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á leigjendur.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur