Mál nr. 41/2022 úrskurður

11. október 2022

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. febrúar 2021 til 1. febrúar 2022 um leigu leigutaka á íbúð leigusala. Aðilar framlengdu samninginn til 1. mars 2022. Ágreiningur er um endurgreiðslu tryggingarfjár.

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lagði leigutaki fram tryggingarfé að fjárhæð 390.000 kr. við upphaf leigutíma. Leigutíma lauk 1. mars 2022 og skilaði leigutaki íbúðinni þann dag. Engin gögn liggja fyrir sem sýna að leigusali hafi gert skriflega kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá þeirri dagsetningu. Aftur á móti liggja fyrir rafræn skilaboð á leigutíma þar sem maki leigutaka viðurkennir að hafa valdið skemmdum á borðplötu í eldhúsi með því að hafa lagt heita pönnu á hana. Einnig féllst hann á að greiða kostnað vegna þessa og því ekki ágreiningur á milli aðila um bótaskyldu sóknaraðila að þessu leyti. Verður því fallist á að leigusala sé heimilt að halda eftir kostnaði vegna viðgerðar á borðplötunni samkvæmt reikningi frá Bauhaus, sem leigusali lagði fram, nemur 190.180 kr. með sögun og fræsingu.

Niðurstaða: Leigusala ber að endurgreiða leigutaka tryggingarfé að fjárhæð 199.820 kr.

Leigjendaaðstoðin notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar vistaðar!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á leigjendur.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur