Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. september 2018 til 31. desember 2018, um leigu á íbúð ásamt húsgögnum og innbúi. Leigjandi lagði fram tryggingarfé að fjárhæð 220.000 kr. til tryggingar á réttum efndum á leigusamningnum. Að sögn leigusala hafi ástand íbúðarinnar verið mjög slæmt við lok leigutímans. Leigusali hélt eftir 45.000 kr. af tryggingarfénu á þeirri forsendu að skemmdir hafi orðið á sófaborði í hans eigu á leigutíma.
Kærunefnd taldi að ljóst væri að leigusali gerði kröfu í tryggingafé innan fjögra vikna frá skilum leiguhúsnæðis. Í málinu lágu fyrir myndir sem sýndu skemmdir á sófaborði og reikningur þar sem fram kemur að viðgerð á því hafi kostað 70.000 kr. Þá þótti sannað að krot með tússpenna á sófaborðinu væri eftir barn leigjanda.
Niðurstaða: Leigusala var heimilt að halda eftir 45.000 kr. af tryggingarfé vegna skemmda á sófaborðinu.