Aðilar gerðu með sér tímabundinn leigusamning frá 1. mars 2021 til 28. febrúar 2022 um leigu íbúðarhúsnæðis. Ágreiningur snýr að endurgreiðslu tryggingarfjár.
Við upphaf leigutíma lagði leigjandi fram 130.000 kr. til tryggingar réttum efndum á leigusamningin aðila. Leigusali endurgreiddi 80.000 kr. við lok leigutíma en hélt eftir 50.000 kr. vegna skemmda á leigutíma.
Kærunefndin rakti ferlið við að leggja fram kröfu í tryggingarfé samkvæmt húsaleigulögum og þá tímafresti sem um það gildir. Fyrir lá að leigjandi skilaði íbúðinni 28. febrúar 2022. Engin skrifleg krafa barst frá leigusala innan fjögurra vikna frá skilum hins leigða eins og áskilið er í húsaleigulögunum. Var kröfu leigusala því hafnað þegar af þeirri ástæðu.
Niðurstaða. Leigusala ber að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 50.000 kr.